Aðalfundur FAS 2009
Haldinn miðvikudaginn 13. maí 2009 kl. 20:00 í félagsmiðstöð Samtakanna 78, Laugavegi 3.
Guðrún Rögnvaldardóttir, formaður FAS, setti fundinn og bauð fundargesti velkomna en síðan var gengið til lögbundinna aðalfundarstarfa.
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
Guðrún lagði til að Ingibjörg S. Guðmundsdóttir yrði fundarstjóri og Sigrún Björnsdóttir fundarritari og var það samþykkt.
2. Skýrsla stjórnar um störf hennar og starfsemi samtakanna.
Guðrún fór vel yfir ársskýrslu FAS sem lögð var fram á fundinum. Hún þakkaði þeim sem ganga úr stjórn fyrir vel unnin störf, sérstaklega Ingibjörgu S. Guðmundsdóttur sem hefur unnið farsælt og gott starf í þágu FAS um árabil. Að lokum talaði hún um nauðsyn þess að starfsemi félagsins haldi áfram og þakkaði hún öllum sem komið hafa að henni í vetur.
3. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram.
Þórdís Þórðardóttir, gjaldkeri FAS, lagði fram endurskoðaðan ársreikning og greindi frá því að 23.338 krónur væru í sjóði. Bergur Felixson og Ólöf Markúsdóttir sáu um að endurskoða ársreikninginn.
4. Umræður um skýrslu stjórnar og ársreikninga og afgreiðsla þeirra.
Nokkrar umræður spunnust um fjárhagsstöðu FAS og laka innheimtu félagsgjalda. Katrín Jónsdóttir, fráfarandi fræðslustjóri Samtakanna ´78, tók til máls og sagði að þátttökuleysi virðist vera landlægt. Það skipti miklu máli að halda starfsemi FAS gangandi því nauðsynlegt væri fyrir fólk að hafa umræðuvettvang og samstarf við aðstandendur annarra hópa, s.s. Trans-Ísland. Guðrún Rögnvaldardóttir tók undir orð Katrínar og nefndi að það væri sama uppi á teningnum í Þýskalandi með þátttöku. Fólk kemur og fer í félögum, er misvirkt en félagið heldur áfram. Hún nefndi að tilgangur foreldrastarfsins væri tvíþættur, annars vegar „neyðarhjálp“, þ.e. aðstoð við aðstandendur þeirra sem eru nýkomnir út úr skápnum og þurfa stuðning, og hins vegar að berjast fyrir réttindum. Við værum langt komin í réttindamálum en þyrftum að legga áherslu á fræðslumálin.
Skýrsla stjórnar og ársreikningur voru samþykkt.
5. Lagabreytingar.
Engar tillögur komu fram um lagabreytingar.
6. Kosning formanns.
Guðrún Rögnvaldardóttir gaf kost á sér áfram sem formaður. Fundarmenn samþykktu með lófaklappi.
7. Kosning annarra stjórnarmanna.
Úr stjórn gengu Ingibjörg S. Guðmundsdóttir og Sigrún Björnsdóttir. Þeir stjórnarmenn sem gáfu kost á sér áfram eru Ása Björk Ólafsdóttir, Laufey Þórðardóttir og Þórdís Þórðardóttir. Nýr stjórnarmaður er Dísa Bergþóra Guðmundsdóttir. Samþykkt með lófaklappi.
8. Ákvörðun um félagsgjald.
Ákveðið var óbreytt félagsgjald 2.500 kr.
9. Önnur mál.
Ása Björk Ólafsdóttir tók til máls og minntist á fund með Trans-Ísland félaginu í liðinni viku og sagði hann hafa verið vel sóttan og bæði skemmtilegan og fróðlegan. Aðrir fundarmenn sem þar voru tóku undir það. Anna Jonna Ármannsdóttir, formaður Trans-Ísland, tók til máls og þakkaði fyrir þátttöku á fyrrnefndum fundi. Hún sagði fundinn hafa verið mikilvægan fyrir starfsemi félagsins Trans-Ísland. Aðstandendur þurfi líka að koma út úr skápnum sem slíkir. Hún lýsti mikilli ánægju og bjartsýni með samstarf FAS og Trans-Ísland. Starfsemi félaganna væri mikil nauðsyn fyrir aðstandendur.
Formlegum aðalfundarstörfum lauk kl. 20:50.
Kaffihlé.
Eftir kaffihlé tók til máls Katrín Jónsdóttir, fráfarandi fræðslustjóri Samtakanna ´78 og sagði frá fræðslustarfi samtakanna í grunn- og framhaldsskólum. Katrín las upp úr lokaskýrslu sem hún og fræðsluteymi verkefnisins sendu á Menntasvið Reykjavíkurborgar um framkvæmd verkefnisins, fræðslustarf í grunn- og framhaldsskólum. Þar kemur m.a. fram að verkefnið var hugsað til 3ja ára, hófst í lok ágúst 2007 en endar 30. apríl 2009 og stóð því í raun ekki nema 18 mánuði. Starfshópurinn sem myndaður var í tengslum við verkefnið starfar hins vegar til 2010. Markmið verkefnisins var að auka þekkingu á málefnum samkynhneigðra. Fundarmenn voru sammála um það að grunn- og framhaldsskólarnir væri einn besti vettvangurinn til þess. Ná þyrfti til náms-og starfsráðgjafa, skólahjúkrunarfræðinga, bókasafnsfræðinga og síðast en ekki síst til kennara skólanna. Fundir voru haldnir í skólunum sem flestir gáfust vel, auk tveggja málþinga með námsráðgjöfum og skólahjúkrunarfræðingum. Fulltrúar FAS tóku virkan þátt í þessum fundum og málþingum. Katrín talaði líka um nauðsyn fræðslustarfsins í skólum til að halda umræðunni opinni um málefni og réttindi samkynhneigðra. Annars er bent á viðkomandi skýrslu um nánari upplýsingar um verkefnið.
Ástæða þess að verkefninu lýkur nú er rekstrarvandi Samtakanna ´78. Frosti formaður S78 lýsti því hve fjárhagur félagsins er tæpur. Nauðsynlegt sé að draga eitthvað saman seglin en mikill áhugi er á að halda fræðslunni áfram í einhverri mynd. Fjörugar umræður urðu og uppástungur komu frá fundarmönnum um sjóði sem mögulega væri hægt að leita í, bæði innanlands og utan.
Guðrún Rögnvaldardóttir tók til máls og þakkaði Samtökunum ´78 fyrir gott samstarf á liðnum vetri, sérstaklega Katrínu Jónsdóttur. Hún vonar að fræðslan og samstarfið haldi áfram. Hún þakkaði góðan fund og fráfarandi stjórnarkonum samstarfið. Katrín þakkaði á móti samstarfið við FAS og lagði áherslu á mikilvægi fræðslustarfsins. Ingibjörg S. Guðmundsdóttir tók að síðustu til máls og þakkaði hlý orð í sinn garð og samstarfið í vetur.
Fundi slitið klukkan 21:50.
Fundarritari: Sigrún Björnsdóttir.