
Ársskýrsla FAS
2010
Aðalfundur Samtaka foreldra og aðstandenda samkynhneigðra,
haldinn 19. maí 2010 í félagsmiðstöð Samtakanna´78.
1. Stjórn, fastir fundir, starfsemi, fjármál
Samtök foreldra og aðstandenda samkynhneigðra, FAS, voru stofnuð 1. nóvember 2003. Að stofnun samtakanna stóð hópur foreldra og aðstandenda homma og lesbía sem lagði grunninn að starfinu og hafði fundað reglulega frá árinu 2000. Á stofnfundi gengu 36 einstaklingar í samtökin, en í dag eru skráðir félagsmenn 83.
Aðalfundur var haldinn miðvikudaginn 13. maí 2009. Fylgt var dagskrá aðalfundar samkvæmt lögum samtakanna. Formaður er kosinn sérstaklega en aðrir stjórnarmenn skipta með sér verkum. Eftirtaldir voru kosnir í stjórn og skiptu þannig með sér verkum:
Guðrún Rögnvaldardóttir, formaður
Laufey Þórðardóttir, varaformaður
Dísa Bergþóra Guðmundsdóttir, ritari
Þórdís Þórðardóttir, gjaldkeri
Ása Björk Ólafsdóttir, meðstjórnandi.
Á starfsárinu sem er frá 1. maí til 30. apríl voru haldnir fimm stjórnarfundir.
Undanfarin ár hafa félagsfundir verið haldnir í húsnæði Samtakanna ‘78 annan miðvikudag í mánuði á tímabilinu september til apríl og aðalfundur í maí. Starfsárið 2008-2009 voru haldnir átta fundir, en mæting á þá var afar slök. Því ákvað stjórn síðastliðið haust að halda einungis tvo félagsfundi, einn á haustmisseri og annan á vormisseri.
Haustfundurinn var haldinn í október undir yfirskriftinni „Hvað er unga fólkið okkar að fást við?“ Á fundinn komu fulltrúar frá Ungliðahópi Samtakanna ´78, Jafningjafræðslunni, Q – Félagi hinsegin stúdenta og Íþróttafélaginu Styrmi og sögðu frá starfsemi þessara hópa. Mæting á fundinn var mjög léleg, aðeins fjórir mættu fyrir utan fulltrúa frá stjórn FAS og þeim hópum sem voru að kynna starfsemi sína. Engu að síður spunnust áhugaverðar umræður og skemmtilegt var að heyra af öllu því fjölbreytta félagsstarfi sem ungt samkynhneigt fólk stendur fyrir.
Í ljósi lélegrar mætingar á haustfundinn var ákveðið að slá fyrirhuguðum vorfundi saman við aðalfund.
Gengið var í Gleðigöngu Hinsegin daga undir merkjum FAS, með nýja og glæsilega fána, og er sá hópur sífellt að stækka sem kýs að ganga með okkur og vekur alltaf töluverða athygli.
Samtökin ´78 og FAS stóðu saman að jólatrésskemmtun fyrir börn samkynhneigðra foreldra, sem haldin var í safnaðarheimili Laugarneskirkju og tókst vel til.
Starf með Menntasviði Reykjavíkurborgar hélt áfram í vetur. Fulltrúi FAS í stýrihópi verkefnisins er Ingibjörg S. Guðmundsdóttir, fyrrverandi formaður FAS.
FAS sendi allsherjarnefnd Alþingis umsögn um frumvarp dómsmála- og mannréttindaráðherra um breytingar á hjúskaparlögum og fleiri lögum og um brottfall laga um staðfesta samvist (ein hjúskaparlög), þar sem frumvarpinu var fagnað og lýst yfir eindregnum stuðningi við það. Umsögnina er að finna í viðauka við ársskýrsluna.
Einu föstu tekjur samtakanna eru félagsgjöld, en þau voru ákveðin kr. 2500 á aðalfundi. Á félagaskrá eru 83 manns en árgjöld greiddu einungis 17 manns.
2. Samstarf við Samtökin´78
Samstarf við Samtökin ‘78 er mjög gott og starfar FAS undir regnhlíf þeirra og í nánu samstarfi við þau. Stjórnarfundir og félagsfundir eru haldnir í hlýlegu húsnæði Samtakanna á Laugavegi 3. Fylgst er vel með helstu baráttumálum Samtakanna og er FAS tilbúið að leggja þeim lið þegar möguleikar gefast eða þörf er á.
Samstarfsverkefni Samtakanna ‘78, FAS og menntasviðs Reykjavíkur hélt áfram í starfshópi fyrrnefndra aðila. Langtímamarkmið verkefnisins er að stuðla að vellíðan starfsmanna, nemenda og foreldra með upplýstri og fordómalausri umræðu um samkynhneigð á vettvangi grunnskólans. Haldinn var fræðslufundur í janúar fyrir lífsleikni- og samfélagsfræðikennara og var hann vel sóttur.
Fulltrúi FAS hefur verið kosinn í trúnaðarráð Samtakanna ‘78 undanfarin ár. Guðrún Rögnvaldardóttir, formaður, tók þátt í fundum trúnaðarráðs sem haldnir voru 9. maí 2009 og 10. október 2009. Á fundum trúnaðarráðs var fjallað um starfsemi og innri málefni Samtakanna frá ýmsum sjónarhornum, félagaöflun, samstarf við fyrirtæki, stefnumótun og fleira. FAS telur mikilvægt að eiga fulltrúa í trúnaðarráði til að fylgjast með umræðunni en einnig fá tækifæri til að leggja lóð á vogarskálar að málefnum Samtakanna.
3. FAS og ungliðahópur Samtakanna ‘78
Ekki tókst að halda sameiginlegt foreldrakvöld ungliðahóps Samtakanna ´78 og FAS þetta árið. FAS telur mjög mikilvægt að foreldrum ungmennanna í ungliðahóp Samtakanna ‘78 sé ljós tilvist foreldrasamtakanna og möguleikar til samskipta við aðra foreldra. Það er von okkar að hægt verði að endurvekja samstarfið og að hópur foreldra ungliða stækki innan FAS.
4. Heimasíða FAS
Á heimasíðu félagsins, www.samtokinfas.is, er birt ýmislegt fræðsluefni og upplýsingar, auk þess sem þar eru auglýstir viðburðir á vegum félagsins og annað áhugavert efni. Heimasíðan á að vera öflugur upplýsinga- og fræðslumiðill fyrir félagsmenn, sem og aðra þá sem vilja kynna sér starfsemi félagsins. Í gegnum hana er einnig hægt að komast í samband við forsvarsmenn félagsins, og það hafa foreldrar og aðrir aðstandendur nýtt sér, sem hafa áhuga á að hitta aðra foreldra og aðstandendur. Bæði stálpuð börn og fyrrverandi makar samkynhneigðra hafa einnig nýtt sér þessa leið til að komast í samband við aðra í sömu sporum.
5. Þátttaka í Gleðigöngu Hinsegin daga
Þátttaka í Gleðigöngu Hinsegin daga var undirbúin að venju. Gangan var vel sótt af aðstandendum og vinum samkynhneigðra. Gangan ásamt öðrum viðburðum Hinsegin daga er einn ánægjulegasti viðburður sumarsins og fyrir mörgum sterk lífsreynsla.
6. Félagar sem ganga úr stjórn kvaddir
Laufey Þórðardóttir og Þórdís Þórðardóttir ganga nú úr stjórn. Guðrún Rögnvaldardóttir, Dísa Bergþóra Guðmundsdóttir og Ása Björk Ólafsdóttir gefa kost á sér áfram. Þeim frábæru konum sem nú ganga úr stjórn eru þökkuð mikil og óeigingjörn störf að málefnum félagsins.
7. Lokaorð
Á síðustu tíu árum, frá því að hópur foreldra og aðstandenda hóf störf árið 2000, hafa orðið miklar breytingar á viðhorfi og högum samkynhneigðs fólks og aðstandenda þeirra á Íslandi. Er það bæði virðingarvert og gleðilegt og íslenskri þjóð, samkynhneigðum og aðstandendum þeirra til sóma. Samhliða aukinni viðurkenningu á samkynhneigð sem eðlilegum þætti í litrófi lífsins hafa forsendur fyrir starfsemi FAS breyst. Foreldrar og aðstandendur hafa ekki lengur sömu þörf fyrir að hittast, deila reynslu sinni með öðrum í sömu sporum og fá stuðning. Þetta sýnir að samfélag okkar er á réttri braut, samkynhneigð er ekki lengur neitt vandamál.
Þar með er ekki sagt að félagið sé orðið óþarft, þótt áherslurnar breytist. Þvert á móti skiptir að mínu mati verulegu máli að það sé til og geti tekið upp hanskann fyrir málefni hinsegin fólks hvenær sem á þarf að halda. Einnig þarf að vera til vettvangur þar sem foreldrar og aðrir aðstandendur samkynhneigðra geta komist í samband við aðra í sömu sporum, því að oft hafa aðstandendur áhyggjur af samkynhneigðum ástvinum sínum og finnst gott að geta talað við aðra aðstandendur.
Það má aldrei sofna á verðinum og jafnréttis- og mannréttindabarátta okkar fólks heldur áfram. Samtök foreldra og aðstandenda eru tilbúin að leggja sitt lóð á vogarskálarnar og eru vel til þess fallin að takast á við verkefnin jafnóðum og þau birtast. Baráttu hinsegin fólks – homma, lesbía, tvíkynhneigðra og transgender fólks – er ekki enn lokið á Íslandi, og úti í hinum stóra heimi er málefnum og stöðu hinsegin fólks ennþá víða ógnað. Samtökin FAS geta orðið fyrirmynd og lagt félögum í öðrum löndum lið.
Stjórn FAS þakkar þeim sem hafa lagt félaginu lið á árinu með starfi og þátttöku.
Guðrún Rögnvaldardóttir, formaður.
Viðauki I

Reykjavík, 1. maí 2010.
Varðar 485. mál á 138. löggjafarþingi 2009-2010:
Umsögn FAS, Samtaka foreldra og aðstandenda samkynhneigðra, um frumvarp til laga um breytingar á hjúskaparlögum og fleiri lögum og um brottfall laga um staðfesta samvist (ein hjúskaparlög).
FAS, Samtök foreldra og aðstandenda samkynhneigðra, lýsa yfir eindregnum stuðningi við ofangreint frumvarp og hvetja til þess að Alþingi samþykki það.
FAS, Samtök foreldra og aðstandenda samkynhneigðra, fagna ofangreindu frumvarpi dómsmála- og mannréttindaráðherra.
Markmið FAS hefur ávallt verið að ein hjúskaparlög gildi í landinu, sem þjóni bæði samkynhneigðu og gagnkynhneigðu fólki. Má í því sambandi minna á áskorun til Alþingis sem aðalfundur FAS árið 2005 samþykkti og send var öllum alþingismönnum í desember það ár. Í greinargerð með áskoruninni segir m.a.: „Með því væri lagalegu jafnrétti náð og samkynhneigðum sem og gagnkynhneigðum, börnum þeirra og fjölskyldum, mætt af virðingu á hamingjustundum lífsins þegar hjúskapur er innsiglaður milli tveggja einstaklinga. [...] Foreldrar og aðstandendur samkynhneigðra skora á Alþingi Íslendinga að stíga skrefið til fulls og breyta hjúskaparlögum nr. 31/1993 svo þau þjóni bæði gagnkynhneigðu og samkynhneigðu fólki. Með því einu að breyta gildissviði laganna og láta 1. greinina gilda um hjúskap tveggja einstaklinga, en ekki karls og konu eins og nú er, og hnika til orðalagi hér og þar í lögunum, næðist þetta fram. [...] Við treystum því að Alþingi Íslendinga, í krafti réttkjörinna þingmanna, stígi skrefið til fulls og breyti hjúskaparlögunum og afnemi þar með lagalega mismunun í íslensku samfélagi á grundvelli kynhneigðar.“
Þessi afstaða FAS hefur jafnframt verið ítrekuð í umsögnum um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lagaákvæðum sem varða réttindi samkynhneigðra (18. mál á 135. löggjafarþingi 2007-2008) og frumvarp til laga um breytingu á lögum um staðfesta samvist, nr. 87/1996, með síðari breytingum (532. mál á 135. löggjafarþingi 2007-2008).
Það er FAS því sérstakt fagnaðarefni að dómsmála- og mannréttindaráðherra skuli nú hafa lagt fram það frumvarp sem hér er veitt umsögn um, og ekki síður fagnar FAS þeim einróma jákvæðu undirtektum þingmanna úr öllum flokkum og utan flokka, sem frumvarpið hlaut við fyrstu umræðu í þinginu. Svo vitnað sé til orða háttvirts þingmanns Þráins Bertelssonar: „Það er dásamlegt að geta aukið rétt fólks án þess að þurfa að ganga á rétt eins eða neins. Með því að auka rétt samkynhneigðra þarf ekki að ganga á rétt þeirra sem gagnkynhneigðir eru. Með því að leyfa hjónabönd samkynhneigðra þarf á engan máta að setja kvóta á fjölda hjónabanda gagnkynhneigðra, takmarka lengd þeirra eða neitt í þá veru. Framfarirnar eru þarna, þær kosta okkur ekki neitt, þær kosta bara að við köstum af okkur þeim fjötrum hugarfarsins sem dingla um hálsinn á mannkyninu frá upphafi vega og það er fagnaðarefni þegar tekst að losna við einn af hinum þungu hlekkjum í þeirri keðju.”
Virðingarfyllst,
Guðrún Rögnvaldardóttir,
formaður FAS
Viðauki II
Ársreikningur FAS,
Samtaka foreldra og aðstandenda samkynhneigðra,
21. maí 2010
Rekstrar- og efnahagsreikningur, gerður samkvæmt fylgiskjölum, sjóðsbókarfærslum og samhljóða reikningsyfirliti frá banka.
Tékkareikningur 5588 í Íslandsbanka (fyrrum Glitni)
Þórdís Þórðardóttir, gjaldkeri
Guðrún Rögnvaldardóttir, formaður
Reikningar FAS fyrir fjárhagsárið 01.05. 2009 – 30.04. 2010 hafa verið endurskoðaðir og er innistæða banka fyrir hendi. Sömuleiðis eru fylgiskjöl og færslur sjóðbókar réttar. Staða bankareiknings er samhljóða reikningsyfirliti frá Íslandsbanka.
Bergur Felixson
Ólöf Markúsdóttir
Rekstarreikningur FAS, 01.05.2009 – 30.04.2010
|
Tekjur |
2010 |
2008-9 |
|||
|
Félagsgjöld |
47.500 |
65.000 |
|||
|
Styrkir v/Gay Pride |
0 |
35.500 |
|||
|
Sala á fánum/GayPride |
24.000 |
43.500 |
|||
|
Aðventusala |
2.400 |
24.200 |
|||
|
Vextir af bankareikn. |
1.011 |
3.294 |
|||
|
Innlegg ‚ ýmislegt |
0 |
9.163 |
|||
|
Framlög í kaffisjóð |
0 |
12.836 |
|||
|
Gjöld umfram tekjur |
0 |
6.073 |
|||
|
Samtals: |
74.911 |
199.566 |
|||
|
Gjöld |
|||||
|
Heimasíða FAS |
68.675 |
51.878 |
|||
|
Fánagerð /merkismenn/Veita |
0 |
119.567 |
|||
|
Ritföng, póstur o. fl. |
4.175 |
16.791 |
|||
|
Þjónustugjald/banki |
0 |
45 |
|||
|
Fjármagnstekjuskattur |
114 |
329 |
|||
|
ýmislegt |
0 |
10.956 |
|||
|
Tekjur umfram gjöld |
1.947 |
||||
|
Samtals: |
74.911 |
199.566 |
Efnahagsreikningur pr. 30.04. 2010
Eignir: 30.4. 2010 30.4. 2009
Tékkareikningur 0513-26-005588 25.285 23.338
Samtals: 25.285 23.338
Skuldir:
Eignir umfram skuldir pr. 30.04.2008 25. 285 23.338
Samtals: 25.285 23.338