
Ársskýrsla FAS
2009
1. Stjórn, fastir fundir, starfsemi, fjármál
Samtök foreldra og aðstandenda samkynhneigðra, FAS, voru stofnuð 1. nóvember 2003. Að stofnun samtakanna stóð hópur foreldra og aðstandenda homma og lesbía sem lagði grunninn að starfinu og hafði fundað reglulega frá árinu 2000. Á stofnfundi gengu 36 einstaklingar í samtökin, í dag eru skráðir félagsmenn 84.
Aðalfundur var haldinn miðvikudaginn 14. maí 2008. Fylgt var dagskrá aðalfundar samkvæmt lögum samtakanna. Formaður er kosinn sérstaklega en aðrir stjórnarmenn skipta með sér verkum. Eftirtaldir voru kosnir í stjórn og skiptu þannig með sér verkum:
Guðrún Rögnvaldardóttir, formaður
Sigrún Björnsdóttir, varaformaður
Laufey Þórðardóttir, ritari
Þórdís Þórðardóttir, gjaldkeri
Ingibjörg S. Guðmundsdóttir, meðstjórnandi.
Með stjórn starfaði einnig Ása Björk Ólafsdóttir.
Á starfsárinu sem er frá 1. maí til 30. apríl voru haldnir níu stjórnarfundir. Starfsemin var með ýmsu sniði eins og undanfarin ár og verður hér á eftir gerð grein fyrir helstu þáttum starfsins.
Fastir fundir eru haldnir í húsnæði Samtakanna ‘78 annan miðvikudag í mánuði á tímabilinu september til apríl og aðalfundur er haldinn í maí. Alls voru haldnir átta fundir. Tilgangur þessara funda eða samverustunda er að halda alltaf opinni leið fyrir aðstandendur samkynhneigðra einu sinni í mánuði til að hitta aðra aðstandendur og eiga notalega stund yfir kaffibolla. Umræðuefni var á nokkrum fundum valið fyrirfram og auglýst og voru þessi umræðuefni valin:
Hvers væntir þú af FAS, hvað finnst þér að FAS ætti að gera?
Hjónabönd samkynhneigðra.
Er þá enginn skápur lengur?
Kyngervi og tilfinningar.
Skólar og umhverfi samkynhneigðra.
Hvað skiptir aðstandendur samkynhneigðra máli í kjörklefanum?
Mæting hefur verið slök á þessa fundi og svo virðist sem þörfin fyrir að hitta aðra foreldra og deila reynslu sinni með þeim sé ekki eins mikil og áður. Það bendir til þess að samkynhneigð sé orðin viðurkenndur þáttur í samfélaginu, og er það vel.
Engin aðventustund var haldin að þessu sinni, en í staðinn tóku félagar úr stjórn FAS þátt í jólabasar Samtakanna ´78 og seldu hinsegin kerti og jólapappír til að afla fjár fyrir FAS. Einnig stóðu Samtökin ´78 og FAS saman að jólatrésskemmtun sem haldin var í safnaðarheimili Laugarneskirkju og tókst vel til, svo að líklega verður skemmtunin endurtekin um næstu jól.
Opni Samtakadagurinn var haldinn í annað sinn 4. október. Ekki var um formlega kynningu á FAS að ræða að þessu sinni, en félagar úr stjórn aðstoðuðu við veitingar.
FAS sendi allsherjarnefnd Alþingis umsögn um frumvarp forsætisráðherra um breytingu á lögum um staðfesta samvist, sem lagt var fram á vorþingi, og var formaður FAS boðaður á fund nefndarinnar til að fylgja umsögninni eftir. Frumvarpið var samþykkt og lagabreytingarnar, sem lúta að rétti trúfélaga til að staðfesta samvist, tóku gildi 27. júní 2008, á alþjóðlegum baráttudegi samkynhneigðra.
Jóhanna Sigurðardóttir varð þann 1. febrúar 2009 fyrsti samkynhneigði forsætisráðherra heims og formaður FAS, f.h. stjórnar, sendi henni bréf með heillaóskum í tilefni af því. Bréfið er að finna í viðauka.
Guðrún Rögnvaldardóttir, formaður, sótti landsfund BEFAH, landssamtaka foreldra og aðstandenda samkynhneigðra í Þýskalandi, sem haldinn var í Stuttgart 1. - 3. maí 2009. Rúmlega 80 fulltrúar sóttu landsfundinn, þar á meðal fulltrúar frá Sviss, Argentínu og Tyrklandi, auk Guðrúnar og dóttur hennar. Guðrún sagði frá réttindamálum samkynhneigðra á Íslandi og starfsemi FAS. Allir þátttakendur höfðu heyrt af íslenska forsætisráðherranum og samglöddust Íslendingum með þennan mikilvæga áfanga.
Starf með Menntasviði Reykjavíkurborgar hélt áfram í vetur og er sagt frá því hér á eftir.
Gengið var í Gleðigöngu Hinsegin daga undir merkjum FAS, með nýja og glæsilega fána, og er sá hópur sífellt að stækka sem kýs að ganga með okkur og vekur alltaf töluverða athygli.
Formaður FAS heimsótti Akureyrardeild FAS og flutti erindi á fundi þar 10. mars. Af því tilefni var stutt innlegg í svæðisútvarpi Norðurlands þar sem fjallað var um FAS og starfsemi þess.
Einu föstu tekjur samtakanna eru félagsgjöld, en þau voru ákveðin kr. 2500 á aðalfundi. Á félagaskrá eru 84 manns en árgjöld greiddu einungis 26 manns. Félagið fékk styrk frá Hinsegin dögum til að standa straum af gerð nýs borða fyrir Gleðigönguna, en einnig voru útbúnir fyrir gönguna fánar sem seldir voru á kostnaðarverði. Að auki voru nokkrar tekjur af kerta- og jólapappírssölu á jólabasar Samtakanna ´78.
2. Samstarf við Samtökin´78
Samstarf við Samtökin ‘78 er mjög gott og starfar FAS undir regnhlíf þeirra og í nánu samstarfi við þau. Stjórnarfundir og samverustundir eru haldin í hlýlegu húsnæði Samtakanna á Laugavegi 3. Fylgst er vel með helstu baráttumálum Samtakanna og er FAS tilbúið að leggja þeim lið þegar möguleikar gefast eða þörf er á.
Opni Samtakadagurinn var haldinn 4. október og var það ánægjulegur viðburður sem vonandi verður framhald á.
Samstarfsverkefni Samtakanna ‘78, FAS og menntasviðs Reykjavíkur hélt áfram í starfshópi fyrrnefndra aðila undir forystu Katrínar Jónsdóttur, fræðslufulltrúa Samtakanna ‘78. Langtímamarkmið verkefnisins er að stuðla að vellíðan starfsmanna, nemenda og foreldra með upplýstri og fordómalausri umræðu um samkynhneigð á vettvangi grunnskólans. Fulltrúar úr stjórn FAS mættu ásamt Katrínu á fundi í nokkrum grunnskólum, þar sem fjallað var um samkynhneigð og starfsemi Samtakanna ´78 og FAS kynnt fyrir kennurum og starfsfólki skólanna. Þann 12. mars var haldið málþing með námsráðgjöfum og skólahjúkrunarfræðingum. Mæting var góð, mikill áhugi á málefninu og umræður líflegar. Fram hefur komið að jafningjafræðslan er stöðugt stækkandi verkefni og eftirspurn mikil og hefur hún einnig verið skoðuð og rædd í starfshópnum. Því miður hefur þrengri fjárhagur Samtakanna ´78 leitt til þess að segja þurfti fræðslufulltrúa þeirra upp störfum og ríkir því nokkur óvissa með framhald þessa verkefnis.
Fulltrúi FAS hefur verið kosinn í trúnaðarráð Samtakanna ‘78 undanfarin fjögur ár. Guðrún Rögnvaldardóttir, formaður, tók þátt í fundum trúnaðarráðs sem haldnir voru 24. maí og 1. nóvember 2008 og 9. maí 2009. Á fundum trúnaðarráðs var fjallað um innri málefni Samtakanna frá ýmsum sjónarhornum, félagaöflun, samstarf við fyrirtæki, stefnumótun og fleira. FAS telur mikilvægt að eiga fulltrúa í trúnaðarráði til að fylgjast með umræðunni en einnig fá tækifæri til að leggja lóð á vogarskálar að málefnum Samtakanna.
3. FAS og ungliðahópur Samtakanna ‘78
Því miður virtist ekki vera áhugi af hálfu ungliðahóps Samtakanna ´78 á að halda foreldrakvöld með þátttöku FAS þetta árið. FAS telur mjög mikilvægt að foreldrum ungmennanna í ungliðahóp Samtakanna ‘78 sé ljós tilvist foreldrasamtakanna og möguleikar til samskipta við aðra foreldra. Það er von okkar að hægt verði að endurvekja samstarfið og að hópur foreldra ungliða stækki innan FAS.
4. Opnir fræðslufundir
Engir fræðslufundir voru haldnir þetta árið, en utanaðkomandi fyrirlesarar mættu á tvo af reglubundnum miðvikudagsfundum. Dr. Sólveig Anna Bóasdóttir guðfræðingur og siðfræðingur kom á nóvemberfundinn og talaði um hjónabönd samkynhneigðra, í tilefni af útgáfu bókar hennar „Ást, kynlíf og hjónaband“. Katrín Jónsdóttir fræðslufulltrúi Samtakanna ´78 kom svo á janúarfundinn og lagði út af efninu: „Er þá enginn skápur lengur?“ Báðir þessir fundir voru auglýstir öllum opnir og var mæting þokkaleg.
5. Heimasíða og netpóstur
Stefnt er að því að virkja betur heimasíðu félagsins, www.samtokinfas.is, og hefur Guðrún Rögnvaldardóttir formaður haft það verkefni með höndum. Heimasíðan á að geta verið öflugur upplýsinga- og fræðslumiðill fyrir félagsmenn, sem og aðra þá sem vilja kynna sér starfsemi félagsins.
6. Þátttaka í Gleðigöngu Hinsegin daga
Þátttaka í Gleðigöngu Hinsegin daga var undirbúin að venju og gengið undir nýjum borða FAS. Útbúnir voru nýir þríhyrndir fánar sem seldir voru á kostnaðarverði og mæltust vel fyrir. Gangan var vel sótt af aðstandendum og vinum og vakti athygli að venju. Gangan ásamt öðrum viðburðum Hinsegin daga er ánægjulegasti viðburður sumarsins og fyrir mörgum sterk lífsreynsla.
7. Félagar sem ganga úr stjórn kvaddir, nýir boðnir velkomnir
Ingibjörg Guðmundsdóttir, sem starfað hefur með félaginu frá upphafi, þar af tvö ár sem formaður, gengur nú úr stjórn, sem og Sigrún Björnsdóttir varaformaður. Guðrún Rögnvaldardóttir, Þórdís Þórðardóttir, Laufey Þórðardóttir og Ása Björk Ólafsdóttir gefa kost á sér áfram. Þeim frábæru konum sem nú ganga úr stjórn eru þökkuð mikil og óeigingjörn störf að málefnum félagsins.
Þeirri stjórn sem við tekur er óskað velfarnaðar í starfinu sem er lifandi og fjölbreytt og tekur sífellt mið af þeim breytingum sem verða í samfélaginu og meðal okkar fólks hverju sinni.
8. Lokaorð
Allt frá því að hópur foreldra og aðstandenda hóf störf árið 2000 hafa orðið miklar breytingar á viðhorfi og högum samkynhneigðs fólks og aðstandenda þeirra á Íslandi. Er það bæði virðingarvert og gleðilegt og íslenskri þjóð, samkynhneigðum og aðstandendum þeirra til sóma. Samhliða aukinni viðurkenningu á samkynhneigð sem eðlilegum þætti í litrófi lífsins hafa forsendur fyrir starfsemi FAS breyst. Foreldrar og aðstandendur hafa ekki lengur sömu þörf fyrir að hittast, deila reynslu sinni með öðrum í sömu sporum og fá stuðning. Þetta sýnir að samfélag okkar er á réttri braut, samkynhneigð er ekki lengur neitt vandamál.
Þar með er ekki sagt að félagið sé orðið óþarft, þótt áherslurnar breytist. Þvert á móti skiptir að mínu mati verulegu máli að það sé til og geti tekið upp hanskann fyrir málefni hinsegin fólks hvenær sem á þarf að halda. Nýjasta þróunin er samstarf við félagið Trans-Ísland, sem hefur leitað til okkar. Við í stjórninni höfum lýst yfir vilja okkar til að opna félagið einnig fyrir aðstandendum transfólks, sem er að mörgu leyti í sömu sporum og samkynhneigðir voru fyrir tveim áratugum.
Það má aldrei sofna á verðinum og jafnréttis- og mannréttindabarátta okkar fólks heldur áfram. Samtök foreldra og aðstandenda eru tilbúin að leggja sitt lóð á vogarskálarnar og eru vel til þess fallin að takast á við verkefnin jafnóðum og þau birtast. Baráttu hinsegin fólks – homma, lesbía, tvíkynhneigðra og transgender fólks – er ekki enn lokið á Íslandi, og úti í hinum stóra heimi er málefnum og stöðu hinsegin fólks ennþá víða ógnað. Samtökin FAS geta orðið fyrirmynd og lagt félögum í öðrum löndum lið.
Stjórn FAS þakkar þeim fjölmörgu sem hafa lagt félaginu lið á árinu með starfi og þátttöku.
Guðrún Rögnvaldardóttir, formaður.
Viðauki

Reykjavík, 2. febrúar 2009
Forsætisráðherra
Jóhanna Sigurðardóttir
Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg
150 Reykjavík
Ágæta Jóhanna!
Stjórn Samtaka foreldra og aðstandenda samkynhneigðra, FAS, lýsir yfir sérstakri ánægju með skipun þína í embætti forsætisráðherra. Sem fyrsti samkynhneigði forsætisráðherra í heimi ert þú samkynhneigðum börnum okkar sams konar fyrirmynd og Vigdís Finnbogadóttir var íslenskum stúlkum á sínum tíma. Það ber samfélagi okkar fagurt vitni að kynhneigð einstaklingsins komi ekki í veg fyrir að hann sé metinn að verðleikum, heldur leyfist hverjum og einum að vera eins og hann er.
Sjálf var ég 22 ára þegar Vigdís var kjörin forseti, og sá atburður veitti mér og jafnöldrum mínum gríðarlegan innblástur. Við ungu konur sáum að við áttum rétt á að vera metnar að verðleikum, til jafns við karla. Samkynhneigð dóttir mín er nú 22 ára og skipun þín í embætti forsætisráðherra verður henni og hennar jafnöldrum sams konar innblástur, og staðfestir fyrir þeim að þau eigi rétt á að vera metin að verðleikum til jafns við gagnkynhneigða.
Við óskum þér alls hins besta í störfum þínum fyrir íslenska þjóð.
Með bestu kveðjum
f.h. stjórnar FAS, Samtaka foreldra og aðstandenda samkynhneigðra
Guðrún Rögnvaldardóttir
formaður
FAS, Samtök foreldra og aðstandenda samkynhneigðra, Laugavegi 3, 101 Reykjavík