Áskorun til Alþingis Íslendinga.
Á aðalfundi FAS, Samtaka foreldra og aðstandenda samkynhneigðra, var eftirfarandi áskorun til Alþingis Íslendinga samþykkt:
Foreldrar og aðstandendur samkynhneigðra skora á Alþingi Íslendinga að breyta hjúskaparlögum nr. 31/1993 á þann veg að þau þjóni bæði gagnkynhneigðu og samkynhneigðu fólki.
Með því einu að breyta gildissviði laganna í 1. gr. og setja að lögin gildi um hjúskap tveggja einstaklinga, en ekki karls og konu eins og nú er, og hnika til orðalagi hér og þar í lögunum, næðist þetta fram.
Reykjavík, 6. desember 2005,
Stjórn FAS.