Fréttir

Umsögn FAS, Samtaka foreldra og aðstandenda samkynhneigðra, um frumvarp til laga um breyting á ýmsum lagaákvæðum sem varða réttindi samkynhneigðra.

FAS, Samtök foreldra og aðstandenda samkynhneigðra, lýsa yfir eindregnum stuðningi við ofangreint frumvarp og hvetja til þess að Alþingi samþykki það. 

Eins og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu hafa samkynhneigðir Íslendingar, eftir gildistöku laga nr. 65/2006, öðlast öll sömu réttindi og gagnkynhneigðir, með einni undantekningu sem varðar stofnun og slit hjúskapar og staðfestrar samvistar.

Samkvæmt 16. grein hjúskaparlaga nr. 31/1993 má „stofna til hjúskapar fyrir presti, forstöðumanni skráðs trúfélags er hefur vígsluheimild, sbr. 17. gr., eða borgaralegum vígslumanni.“ Sömu aðilar, auk dómara, geta skv. 42. gr. laga nr. 31/1993 leitað um sættir milli hjóna sem ákveðið hafa að leita skilnaðar.  

Um staðfesta samvist gilda hins vegar lög nr. 87/1996, en samkvæmt 4. gr. þeirra laga geta aðeins sýslumenn og löglærðir fulltrúar þeirra framkvæmt staðfestingu á samvist, og aðeins sýslumenn og dómarar leitað sátta skv. 8. grein laganna.  

Kirkjuþing samþykkti 25. október síðastliðinn að þeim prestum þjóðkirkjunnar, sem það vilja, verði heimilt að staðfesta samvist samkynhneigðra, ef löggjafinn veitir trúfélögum heimild til þess. 

Því er erfitt að sjá hvað ætti að standa í veginum fyrir því að hjúskaparlög nr. 31/1993 geti einnig gilt um hjúskap samkynhneigðra, séu gerðar á þeim þær breytingar sem lagðar eru til í 1. og 2. grein frumvarpsins.  

Með því að ein hjúskaparlög gildi í landinu, sem nái bæði til gagnkynhneigðra og samkynhneigðra, væri lagalegu jafnrétti náð, og samkynhneigðum sem og gagnkynhneigðum, börnum þeirra og fjölskyldum, mætt af virðingu á hamingjustundum lífsins þegar hjúskapur er innsiglaður milli tveggja einstaklinga.

- Umsögn send allsherjarnefnd Alþingis 5. desember 2007.

 


25. október 2007

YFIRLÝSING SAMTAKANNA '78 VEGNA SAMÞYKKTAR KIRKJUÞINGS

Samtökin ´78 fagna viljayfirlýsingu Þjóðkirkjunnar þess efnis að prestum hennar verði heimilt að staðfesta samvist samkynhneigðra fáist til þess heimild í lögum. Frá því að lögin um staðfesta samvist tóku gildi árið 1996 hefur Þjóðkirkjan beðist undan aðkomu sinni að löggerningnum staðfestri samvist og er ákvörðun kirkjunnar því ánægjulegt skref í átt að réttarþróun undanfarinna ára og almennum viðhorfum í samfélaginu.

Fyrir tilstilli Alþingis hefur réttarstaða samkynhneigðra verið leiðrétt að fullu, ef undan er skilinn réttur trúfélaga til þess að vígja samkynhneigð pör í hjúskap. Lögin um staðfesta samvist hafa því úrelst, og samþykki alþingi umræddan vígslurétt þá er þörfin á sérlöggjöf til handa samkynhneigðum að engu orðin. Það er dapurlegt að um leið og kirkjan stígur skref í átt til jafnréttis þá skuli hún sjá sig knúna til þess að beita orðræðu útilokunnar um hjónabandið. Fimm ríki í veröldinni hafa nú þegar stígið skrefið til fulls og tekið upp eina hjúskaparlöggjöf sem gildir jafnt fyrir alla óháð kynhneigð. Annars staðar, svo sem í Bandaríkjunum, hefur skilgreining hjónabandsins sem sáttmála karls og konu hins vegar verið notuð til þess að löggilda mismunun. Samtökin ´78 undra sig á því hvað það er sem vakir fyrir Þjóðkirkjunni að koma fram með þess háttar yfirlýsingu nú.

f.h Samtakanna ´78

Frosti Jónsson formaður, Hrafnhildur Gunnarsdóttir varaformaður og Hrafnkell T. Stefánsson framkvæmdastjóri

 

 

 


 

Þann 6. desember 2005 gengu fulltrúar FAS á fund forseta Alþingis og afhenti áskorun til Alþingis um að breyta hjúskaparlögunum svo að þau þjóni bæði gagnkynhneigðu fólki og samkynhneigðu fólki.
Með áskoruninni fylgdi greinargerð. Áskorunin og greinargerðin voru einnig send öllum þingmönnum.
Hér að neðan er hægt að lesa áskorunina og greinargerðina.
Áskorun til Alþingis
Greinargerð með áskoruninni

 

Eldri fréttir:
Sérrit Kirkjuritsins, Samkynhneigð, kirkja og trú: Hvar stöndum við?
Glæsilegur stofnfundur FAS

Foreldrar á Norðurlandi héldu sinn fyrsta fund í október 2003