Samtök foreldra og annarra aðstandenda samkynhneigðra eru starfandi á vettvangi Samtakanna ´78, og hafa verið það frá 1987 með nokkrum hléum. Óhætt er að segja að mikið vatn hafi runnið til sjávar síðan fyrstu samkynhneigðu einstaklingarnir komu fram á Íslandi, og breyttir tímar frá því sem var sem hefur haft jákvæð áhrif á líf okkar allra. Gay pride göngurnar í sumar og í fyrra sýna þann mikla fjölda samkynhneigðra og fjölskyldna þeirra, vina og ættingja sem fylltu stræti og torg hér í borg og endurspegluðu: Gleði - stolt og sýnileika og undirstirka að fjölbreytileikinn - litróf lífsins skipar sér æ meiri sess í okkar samfélagi. Jafnframt höfum við verk að vinna sem virkir þátttakendur í mótun þess samfélags sem rís við upphaf 21. aldar, þ.á.m. að stuðla að þekkingu og umræðu um samkynhneigð sem styrkir viðhorf og réttsýni í samfélaginu.
Starf okkar og markmið
Við hittumst reglulega yfir vetrarmánuðina. Markmið okkar er tvíþætt: Að veita aðstandendum stuðning og einnig samkynhneigðum ástvinum. Við deilum hvert með öðru reynslu okkar styrk og vonum, leggjum rækt við okkur sjálf og teljum að með því séum við betur aflögufær til að vera sterkir bakhjarlar við ástvini okkar. Einnig vinnum við að fræðslu innan okkar vébanda og út í samfélagið. Sl. vetur héldum við opna fræðslufundi einu sinni í mánuði sem leiddu til gefandi og gagnlegrar umræðu, þar sem aðstandendur og samkynhneigðir áttu vettvang til að nálgast oft viðkvæm málefni. Framlag okkar á þessu hausti er opinn fræðslu- og kynningarfundur sem verður í safnaðarheimili Fríkirkjunnar, laugardaginn 17. nóvember, og hefst kl.15. Við höfum mikilvægt verk að vinna til aukinnar umræðu um samkynhneigð og sýnileika sem snýr að okkar fólki og fjölskyldum.
Af hverju er sýnileikinn mikilvægur?
Það er öllum mönnum mikilvægt að lifa sátt og með reisn í sínu umhverfi. Því vinnum við að aukinni þekkingu á samkynhneigð og teljum mikilvægt að fólk átti sig á því að málefni samkynhneigðra snerta mjög marga í samfélaginu. En hversu marga? Við getum ekki sagt það með vissu, en fræðin um allan heim segja að 10-15% mannkyns séu samkynhneigðir. Ég ætla að gefa mér hófsöm líkindi og beita einfaldri tölfræði til að skoða það nánar út frá íslenskum aðstæðum og miða við mannfjölda um sl. áramót.
Segjum að samkynhneigðir séu 5% þjóðarinnar, þ.e. ca. 14.168 einstaklingar
Reiknum með að 15% samkynhneigðra eigi eitt barn ca. 2.125 einstaklingar
Tveir foreldrar standa á bak við hvern samkynhneigðann ca. 28.336 einstaklingar
Eina systir/bróðir reiknum við hverjum samkynhneigðum ca. 14.168 einstaklingar
Varlega áætlað á hver samkynhneigður eina ömmu/afa ca. 14.168 einstaklingar
Þetta gerir samtals ca. 72.965 einstaklingar
Þetta dæmi sýnir að samkynhneigðir og þeirra allra nánustu aðstandendur eru rúmlega 25% allra Íslendinga, og það mjög vægt reiknað. Þá eru ekki taldir föðurbræður og móðursystur samkynhneigðra, systkinabörn, frændur, frænkur, bekkjarfélagar, vinir, nábúar og vinnufélagar. Þegar allt er talið, hvað eru mörg prósent eftir af þjóðinni sem samkynhneigð snertir ekki á einhvern hátt?
Það er ástæða til að hvetja til þess að samkynhneigðir séu sýnilegir í samfélaginu og að samfélagið viðurkenni mannauð sinn í öllum fjölbreytileika sínum. Það er mikilvægt að samfélagið þekki og viðurkenni fjölbreytileika fjölskylduforma. Hér á landi á enginn að vera eyland einangraður í einsemd frá samfélagi manna. Það er óhollt og heilsuspyllandi. Því er mikilvægt að allir fái að njóta sín eins og þeir eru, þess vegna er sýnileiki og viðurkenning mikilvægir þættir.
Lokaorð
Við upphaf 21. aldar erum við að leggja grunn að framtíðarsamfélagi okkar þar sem allir eiga sinn sess - það á að vera samfélag fjölbreytileikans þar sem allir fá notið sín. Við foreldrar og aðrir aðstandendur samkynhneigðra erum þátttakendur í þeirri uppbyggingu og munum leggja okkar hornstein í þann grunn sem standa mun til frambúðar. Þar mun engin manneskja vera eyland heldur sýnileg eins og hún er því framtíðarsamfélagið þarf á okkur öllum að halda.