Umsögn FAS um frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lagaákvæðum sem varða réttindi samkynhneigðra.
UM FUNDI FAS
Foreldrar og aðrir aðstandendur lesbía og homma hittast á fundum nokkrum
sinnum yfir veturinn. Fundir FAS eru
haldnir í félagsmiðstöð Samtakanna 78 á Laugavegi 3, 4. hæð. Fundirnir
hefjast kl. 20:30.
Ef fólk hefur þörf fyrir rólega stund og spjall fyrir fundinn er alltaf einhver úr okkar hópi til staðar frá kl. 20:00.
Markmið okkar er að hittast og deila hvert með öðru reynslu okkar, styrk og
vonum. Við leggjum rækt við okkur sjálf og erum þannig betur aflögufær
til að vera bakhjarlar við ástvini okkar.
Við eflum umræðu um samkynhneigð í okkar nánasta umhverfi og í
samfélaginu.
Við vinnum að fræðslu, bæði með opnum fundum sem og innan okkar hóps og
aukum með því skilning og þekkingu á því að samkynhneigð er
fjölskyldumál.
Velferð samkynhneigðra ástvina okkar varðar okkur öll.