Samtök foreldra og aðstandenda samkynhneigðra eru sjálfsprottinn félagsskapur sem byggir á starfi foreldra sem hittust reglulega í félagsmiðstöð Samtakanna ´78 á árunum 2000 til 2003 og lögðu grunninn að starfinu, bæði með stuðningsfundum tvisvar í mánuði og einnig opnum fræðslufundum.
Samtökin voru formlega stofnuð í nóvember 2003.
Heimasíðu FAS er ætlað að auðvelda foreldrum og aðstandendum:
Gleðiganga Hinsegin daga fer fram laugardaginn 7. ágúst.
Komið og gangið með okkur og sýnið stuðning við hinsegin ástvini ykkar!
Aðalfundur FAS 2010 var haldinn miðvikudaginn 19. maí. Sérstakur gestur fundarins var Ragna Árnadóttir, dómsmála- og mannréttindaráðherra.
Ársskýrslu og reikninga má lesa hér og fundargerð aðalfundar hér.
Félagar eru vinsamlegast beðnir að greiða árgjald, kr. 2500, inn á reikning nr. 0513-26-005588, kennitala 700404-4980, og senda tilkynningu á fas@samtokinfas.is.
Kom maki þinn út úr skápnum?
Fundur fyrir fyrrverandi maka samkynhneigðra - sjá hér.
Aðalfundur FAS 2009 var haldinn miðvikudaginn 13. maí.
Ársskýrslu má lesa hér og fundargerð aðalfundar
hér.
Félagar eru vinsamlegast beðnir að greiða árgjald, kr. 2500, inn á reikning nr. 0513-26-005588, kennitala 700404-4980, og senda tilkynningu á fas@samtokinfas.is.
Ef þú vilt komast í samband við foreldra
eða aðra aðstandendur samkynhneigðra þá er
upplýsingar að finna hér.
Margir foreldrar tala um hve mikilvægt sé að komast í samband við
aðra foreldra samkynhneigðra. Að geta tjáð kvíða sinn og áhyggjur, komið
hugsunum sínum og tilfinningum í orð og aukið þekkingu sína á samkynhneigð sem
er fjölskyldumál. Við erum stolt af börnunum okkar og viljum styðja þau á allan
þann hátt sem við getum.
Hvað getur foreldri homma eða lesbíu gert?
Bætum líf hvers annars,
með vináttu, þekkingu og þátttöku.